

4 MOLD ERT ÞÚ - BÓK
Bókin „Mold ert þú - Jarðvegur og íslensk náttúra" (2023) er yfirlit um jarðveg og náttúru landsins út frá sjónarhorni moldarinnar. Í bókinni eru 23 kaflar með ítarlegum heimildarlistum. Bókin (pdf) er á netinu á moldin.is .
Fjallað er um myndun og eiginleika jarðvegsins bæði almennt sem og um jarðveg á Íslandi. Steindafræði fær rými því hún útskýrir mjög margt um eiginleika moldarinnar, sem og lífræn efni. Moldin er mikilvæg fyrir miðlun vatns í vistkerfum og helst eiginleikar og hugtök sem tengjast vatni í jarðvegi eru útskýrð. Nokkrir kaflar eru tileinkaðir eðlis- og efnaeiginleikum íslensks jarðvegs og helst dráttum þróun moldar á íslandi.
Moldin í heiminum er misjöfn og helstu jarðvegsgerðum heims eru gerð skil í bókinni – allt frá jarðvegi hitabeltisins til sífrerans – með aðgengilegum hætti. Eldfjallajörð (Andisol), jarðvegur eldfjallasvæða fær sérstaka athygli, enda mjög sérstæð mold á heimsvísu. Flokkun íslensks jarðvegs fær einnig rými.
Þá eru veglegir kaflar áhrif frosts á náttúru landsins, sem er meiri en gengur og gerist á arktískum svæðum. Auðnirnar, og þá sérstaklega sandarnir eru teknir fyrir. Vitaskuld fær eyðing jarðvegs, jarðvegsrof, sérstakt rými, bæði almennt fræðilega sem og eyðing moldar á Íslandi. Landeyðing almennt fær rými í bókinni, sem og slæm staða vistkerfa á Íslandi og saga eyðingarinnar. Tengsl loftslags og moldar eru mjög mikil og þau fá rými í sérstökum kafla. Þá er að síðustu vikið að vistheimt: endurheimt náttúrulegar vistkerfa.
Bókin er 525 bls. að lengd í stóru broti. Iðnú útgáfa gefur út (2023). Hverjum kafla fylgir ítarlegur heimildalisti.
Bókina má nálgast á síðunni moldin.is, en efni hennar er skilgreint sem „public domain“ nema annars sé getið (t.d. myndir o.s.frv.).
Mold ert þú fékk viðurkenningu Hagþenkis 2023 (hagþenkir.is) Í ályktunarorðum viðurkenningarráðsins sagði um ritið: Stórvirki á sviði náttúru- og umhverfisfræði með áherslu á sérstöðu íslensks jarðvegs. Fjallað er ýtarlega um mikilvægi moldarinnar í vistkerfum þurrlendis með ríkulegum gögnum og myndefni.

